Fundir, viðburðir og afþreying - allt á einum stað

Í Miðbæ Selfoss bjóðum við upp á fjölbreytta salarleigu fyrir fyrirtæki, hópa og einstaklinga. Hvort sem þú ert að skipuleggja fund, ráðstefnu, vinnustofu, teymisdag, afmæli, árshátíð eða skemmtun, þá finnur þú sal sem hentar og meira til. Við rekum nokkrar ólíkar staðsetningar, hver með sinn karakter, stemningu og möguleika. Sameiginlegt er fagleg þjónusta, tæknibúnaður og reynsla af því að gera viðburði eftirminnilega.

Viðburðir

Risið Vínbar

Hlýlegt og stílhreint rými í Mjólkurbúinu sem hentar fyrir vinnustofu og einkapartý.
Viðburðir

Miðbar

Líflegur bar og samkomustaður þar sem auðvelt er að blanda saman fundi og skemmtun. Fullkomið fyrir hópefli, pub quiz, karaoke og Beer Pong.
Viðburðir

Ráðstefnur & viðburðir

Salur með sviði, hljóðkerfi, ljósum og stórum skjám. Hentar vel fyrir fyrirlestra, kynningar, brúðkaup, tónleika, árshátíðir og aðra viðburði.
Viðburðir

Bankinn Vinnustofa

Rými sem er sérstaklega hannað fyrir vinnu, hugmyndavinnu og námskeið. Rólegt umhverfi með góðri aðstöðu fyrir einbeitingu og samtal. Rými sem er sérstaklega hannað fyrir vinnustofur, hugmyndavinnu, veislur, námskeið og kynningar. Rólegt umhverfi með góðri aðstöðu fyrir einbeitingu og samtal. Eldhús og bar á staðnum ásamt hljóðkerfi og skjávarpa.

Afþreying sem gerir viðburðinn eftirminnilegan

Við erum ekki bara með veislusali, við erum með afþreyingu. Hægt er að bæta við:

  • Pub quiz, Karaoke
  • Leiki og hópverkefni
  • DJ, trúbadora, píanóleikara eða hvaða lifandi atriði sem er
  • Samstarf við hótel á svæðinu
  • Matar rölt og vínkynningar

Kíktu inn

Sjáðu fyrir þér viðburðinn þinn og hvernig fyrirkomulagið á Sviðinu getur virkað fyrir þig. Vafraðu um og skoðaðu alla króka og kima, við bjóðum upp á margvíslega uppröðun. Hafðu samband og við sníðum Sviðið að þínum viðburði.

Smelltu á myndina til þess að kíkja inn á Sviðið.

Sviðið

  • Eyravegur 1, 800 Selfoss
  • svidid (at) svidid.is

Opnunartími

Opið á viðburðardögum. Sjáið viðburðardagatal.

Merktu með #svidid

Facebook icon
Instagram icon
© Sviðið 2026
Vefverk: Gasfabrik

Hafðu samband og við svörum um hæl.

© Sviðið 2026
Vefverk: Gasfabrik
-->