Fundir, viðburðir og afþreying - allt á einum stað
Í Miðbæ Selfoss bjóðum við upp á fjölbreytta salarleigu fyrir fyrirtæki, hópa og einstaklinga. Hvort sem þú ert að skipuleggja fund, ráðstefnu, vinnustofu, teymisdag, afmæli, árshátíð eða skemmtun, þá finnur þú sal sem hentar og meira til. Við rekum nokkrar ólíkar staðsetningar, hver með sinn karakter, stemningu og möguleika. Sameiginlegt er fagleg þjónusta, tæknibúnaður og reynsla af því að gera viðburði eftirminnilega.
Afþreying sem gerir viðburðinn eftirminnilegan
Við erum ekki bara með veislusali, við erum með afþreyingu. Hægt er að bæta við:
- Pub quiz, Karaoke
- Leiki og hópverkefni
- DJ, trúbadora, píanóleikara eða hvaða lifandi atriði sem er
- Samstarf við hótel á svæðinu
- Matar rölt og vínkynningar
Kíktu inn
Sjáðu fyrir þér viðburðinn þinn og hvernig fyrirkomulagið á Sviðinu getur virkað fyrir þig. Vafraðu um og skoðaðu alla króka og kima, við bjóðum upp á margvíslega uppröðun. Hafðu samband og við sníðum Sviðið að þínum viðburði.
Smelltu á myndina til þess að kíkja inn á Sviðið.
Sviðið
- Eyravegur 1, 800 Selfoss
- svidid (at) svidid.is
Opnunartími
Opið á viðburðardögum. Sjáið viðburðardagatal.
Merktu með #svidid