Hipsumhaps
Hipsumhaps
Hipsumhaps mætir til okkar föstudaginn 27. febrúar.
Nýtt efni af væntanlegri plötu og allt það helsta sem þyrstir aðdáendur geta ekki streymt heima hjá sér.
Hipsumhaps mætir til okkar föstudaginn 27. febrúar.
Nýtt efni af væntanlegri plötu og allt það helsta sem þyrstir aðdáendur geta ekki streymt heima hjá sér.
Birgir Hákon mætir loksins á Miðbar!
Flestir kannast við Birgi Hákon, en hann hefur nú loksins boðað komu sína á Miðbar föstudaginn 28. febrúar. Þetta verður kvöld þar sem orkan, tónlistin og stemningin verða í forgrunni og ekkert látið eftir.
Kvöldið hefst kl. 21:00 þegar DJ Siddi Sig hitar upp og setur tóninn áður en Birgir Hákon tekur við. Hér má búast við kraftmiklu kvöldi þar sem dansgólfið verður á fullu og stemningin heldur áfram langt fram á nótt.
Í boði verður að panta flöskuborð fyrir þá sem vilja gera kvöldið extra þægilegt og skemmtilegt.
Miðaverð er 1.500 kr. í forsölu og 2.500 kr. við hurð.
Miðasala hefst á fimmtudaginn klukkan 10:00
Dragdrottningarnar CrisArtista, Miss Agatha P. og Miss Whoop Whoop mæta yfir heiðina og lofa kvöldi fullu af gleði, húmor og ógleymanlegri skemmtun.
Í tilefni af hinsegin viku Árborgar kostar miðinn aðeins 500 kr og allur ágóði rennur til forvarnarhóps Árborgar fyrir hinsegin fræðslu.
Þú færð frábæra skemmtun og styður um leið mikilvægt samfélagsverkefni.
Búðu þig undir sturlaða stemningu, glimmer, hlátur og kvöld sem þú vilt ekki missa af.
Komdu með vinum, taktu dansskóna með og vertu með þegar við fögnum fjölbreytileikanum saman!
Miðasala hefst föstudaginn 13. febrúar klukkan 16:00
Vegna fjölda áskoranna!
Á móti sól snýr aftur á Sviðið.
Öll bestu lögin, örfáir vondir brandarar og spilagleði í hæstu hæðum. Komdu, dansaðu og syngdu með.
Miðasala hefst 5. desember kl 13:00
Húsið opnar 20:00
20 ára aldurstakmark
Það er eitthvað sérstakt við mars!
Ísinn farinn að bráðna, veiðigræjurnar teknar upp úr geymslu… og taugarnar farnar að titra.
Lausnin? Bjórkvöld veiðimanna á Miðbar föstudaginn 13. mars.
Tvíburabræðurnir Gunni Helga og Ási Helga mæta á svæðið og taka völdin. Þeir leiða pöbb kviss sem snýst um veiði og fleira, þeir henda í happdrætti, draga fram veiðisögur sem eru líklega 60% sannar og 40% stórkostlega ýktar, og halda uppi stemningu sem læknar veiðiskjálftann hraðar en nokkuð annað!
Vinningarnir þetta kvöld verða ekkert grín!
Tvö veiðileyfi fyrir tvær stangir í sumar frá SVFR, Veiðikortið, flugur, tangir, gjafabréf út að borða og hellingur af dóti sem fær hjartað til að slá aðeins hraðar.
Aðgangur kostar aðeins 1500 krónur og stór bjór fylgir með.
Það er nánast vísindalega sannað að þetta kvöld styttir veturinn um að minnsta kosti eina viku.
Veiðimenn og konur, þetta er kvöldið ykkar.
Takið félagana, makann eða makkerinn með.
Grétar Matt ásamt hljómsveit með alvöru tónleika á Sviðinu.
Grétar Lárus Matthíasson eða “Grétar Matt” (Greddi Rokk) gaf út sína fyrstu sólóplötu í mars 2025 og hélt í tilefni að því útgáfutónleika í bæjarbíó í Hafnarfirði ásamt hljómsveit sinni og öðru frábæru tónlistarfólki fyrir fullu húsi.
Grétar er ekkert nýstirni í bransanum en hann er mörgum landsmönnum kunnugur enda spilað og sungið á allmörgum skemmtunum og uppákomum í gegnum tíðina.
Taktu fram neon litina, glow sticks og throwback stemninguna - við erum að fara aftur til 2016!
Á Miðbar verða engir aðrir en Big Sexy og DJ Eisi sem munu trylla allt með massívri orku, throwback hitturum og alvöru partýstemningu!
Búið er að panta tryllt ljósakerfi og Black lights svo allir verða vel upplýstir!
Með miða fylgir glow stick og andlitsmálning fyrir Black Light.
Dresscode: 2016
Miðbar opnar 18:00
Flöskuborð byrja 21:00
Dagskrá hefst 23:00
Það er 18 ára aldurstakmark á þennan viðburð.
Opið á viðburðardögum. Sjáið viðburðardagatal.
Merktu með #svidid
Hafðu samband og við svörum um hæl.