
Annar í jólum ball með Alles Okei?
Ef þú ert að leita að balli þar sem enginn situr kyrr og dansgólfið nötrar frá fyrsta lagi til þess síðasta, þá er Alles Ókei hljómsveitin fyrir þig.
Með sprenghlaðna orku, ómótstæðilegt stuð og lög sem allir geta sungið með, tryggja þeir að kvöldið verði ógleymanlegt, alvöru partý frá byrjun til enda.
Alles Ókei hefur á stuttum tíma orðið eitt heitasta ball-band landsins, og það kemur okkur ekki á óvart.
Þau hafa lagt undir sig sveitaböll, stórhátíðir og helstu viðburði landsins, þar á meðal Þjóðhátíð og Ljósanótt, og hvert sem þau mæta er sama sagan: húsið fyllist, dansinn færist upp á borð og stemningin fer á eitthvað stig sem við öll elskum.
Miðasala hefst á næstunni!

Upplýsingar:
- Húsið opnar klukkustund fyrir hvern viðburð
- Aldurstakmark: 18 ára
- Aðgengi fyrir hjólastóla
- Spurningar? Hafðu samband
- Skilmálar
Á Sviðinu
Ef þú ert að leita að balli þar sem enginn situr kyrr og dansgólfið nötrar frá fyrsta lagi til þess síðasta, þá er Alles Ókei hljómsveitin fyrir þig.
Með sprenghlaðna orku, ómótstæðilegt stuð og lög sem allir geta sungið með, tryggja þeir að kvöldið verði ógleymanlegt, alvöru partý frá byrjun til enda.
Alles Ókei hefur á stuttum tíma orðið eitt heitasta ball-band landsins, og það kemur okkur ekki á óvart. Þau hafa lagt undir sig sveitaböll, stórhátíðir og helstu viðburði landsins, þar á meðal Þjóðhátíð og Ljósanótt, og hvert sem þau mæta er sama sagan: húsið fyllist, dansinn færist upp á borð og stemningin fer á eitthvað stig sem við öll elskum.
Þetta er fullkomið tækifæri til að sleppa sér með vinum, njóta góðra drykkja og lifa sig inn í stemninguna sem fær alla til að gleyma sér í gleðinni. Útsendari Sviðsins fór nýlega á ball með Alles Ókei og var enn með harðsperrur tveimur dögum á eftir, það segir allt sem segja þarf.
Aðgengi fyrir hjólastóla
Lyfta er við innganginn þar sem fólk með örðugleika við gang eða í hjólastól getur notað. Ef það eru einhverjar sérþarfir hjá gestum, vinsamlegast hafið samband og við reynum að koma til móts við þá.
Sviðið
- Eyravegur 1, 800 Selfoss
- svidid (at) svidid.is
Opnunartími
Opið á viðburðardögum. Sjáið viðburðardagatal.
Merktu með #svidid