Loading Events
1. maí

RUMOURS – Til heiðurs FLEETWOOD MAC

Hljómplatan Rumours var ellefta plata Fleetwood Mac og kom út í febrúar árið 1977. Hún sló sannarlega í gegn því hún sat í efsta sæti Billboard listans í Bandaríkjunum í sjö mánuði. Rumours er ein söluhæsta hljómplata allra tíma og hefur selst í meira en 40 milljónum eintaka. Platan hefur ítrekað verið valin ein af bestu plötum poppsögunnar enda inniheldur hún sígild lög eins og Don’t Stop, Dreams, Go Your Own Way, Songbird og Second Hand News.

Á tónleikunum flytur hópurinn meistaraverkið Rumours í heild sinni ásamt úrvali vinsælustu laga Fleetwood Mac. Má þar nefna Little Lies, Black Magic Woman, Hold Me, Seven Wonders, Gypsy, Big Love og Rhiannon.

Um sönginn sjá STEFANÍA SVAVARS, MAGNI OG MARGRÉT EIR.

Hljómsveitina skipa Stjórnar meðlimirnir Sigfús Óttarsson (trommur) og Kristján Grétarsson (gítar), Todmobile maðurinn Kjartan Valdemarsson (hljómborð) og Todmobile/Stjórnar-liðinn Eiður Arnarsson (bassi).

Frábær jólagjöf fyrir tónlistarunnendur!

Miðaverð
7990 kr
1. maí

Upplýsingar:

Sviðstími
21:00
Miðaverð
7990 kr

Á Sviðinu

Hljómplatan Rumours var ellefta plata Fleetwood Mac og kom út í febrúar árið 1977. Hún sló sannarlega í gegn því hún sat í efsta sæti Billboard listans í Bandaríkjunum í sjö mánuði. Rumours er ein söluhæsta hljómplata allra tíma og hefur selst í meira en 40 milljónum eintaka. Platan hefur ítrekað verið valin ein af bestu plötum poppsögunnar enda inniheldur hún sígild lög eins og Don’t Stop, Dreams, Go Your Own Way, Songbird og Second Hand News.


Aðgengi fyrir hjólastóla

Lyfta er við innganginn þar sem fólk með örðugleika við gang eða í hjólastól getur notað. Ef það eru einhverjar sérþarfir hjá gestum, vinsamlegast hafið samband og við reynum að koma til móts við þá.

Sviðið

  • Eyravegur 1, 800 Selfoss
  • svidid (at) svidid.is

Opnunartími

Opið á viðburðardögum. Sjáið viðburðardagatal.

Merktu með #svidid

Facebook icon
Instagram icon
© Sviðið 2025
Vefverk: Gasfabrik