Persónuvernd
Hver erum við
Sviðið, Eyravegur 1, 800 Selfoss. Söluaðili er Gott Kvöld ehf, kt. 521120-0290. Netfang: svidid@svidid.is
Persónuvernd
Sviðið heitir kaupanda fullum trúnaði um upplýsingar sem hann lætur Sviðinu í té og verða upplýsingar ekki afhentar þriðja aðila.
Sviðið er ábyrgðaraðili í skilningi persónuverndarlaga, þ.e. laga nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga.
Vakni spurningar í tengslum við stefnu Sviðsins er snúa að persónuupplýsingum eru einstaklingar hvattir til að hafa samband við Sviðið.
Form á vefnum
Þegar þú sendir fyrirspurn, fyrirspurn um salarleigu eða pöntun á gjafakorti berast upplýsingarnar sem þú slærð inn (nafn, netfang, sími og skilaboð) Sviðinu í tölvupósti, svo hægt sé að svara þér. Þær eru ekki geymdar í gagnagrunni á vefnum.
Póstlisti
Velji notandi að skrá sig á póstlista Sviðsins vinnur Sviðið með upplýsingar um nafn og netfang viðkomandi. Vinnslan byggir á samþykki og getur notandi hvenær sem er afskráð sig af póstlistanum, þ.m.t. með því að smella á afskráningartengil í tölvupóstum sem berast frá Sviðinu.
Miðasala
Miðar á viðburði eru seldir á Tix.is. Um upplýsingar sem þú gefur upp við miðakaup gilda skilmálar Tix.
Kökur/Cookies
Svidid.is notar kökur til þess að styðja við notendaupplifun þína á vefnum hvað varðar miðakaup og almenna notkun á vefnum.
Sjá einnig skilmála Sviðsins.