16. desember
Friðarjól jólatónleikar
Í annríki aðventunnar er gott að staldra við, njóta fallegrar tónlistar og beina huganum að því sem jólin snúast um fæðingu Jesú Krists og þeim friði, kærleika og von sem hann færir okkur.
Hvítasunnukirkjan á Selfossi býður til hátíðlegra jólatónleika þar sem hæfileikaríkt tónlistarfólk á öllum aldri kemur saman og flytur fjölbreytta jólatónlist í hlýlegri og notalegri stemningu.
Tónleikarnir Friðarjól eru hugsaðir sem góð leið til að draga andann djúpt, njóta aðventunnar og leyfa friði jólanna að fylla hjörtun.

Upplýsingar:
- Sýningartími
- 20:00
- Húsið opnar klukkustund fyrir hvern viðburð
- Spurningar? Hafðu samband
- Skilmálar
Á Sviðinu
Miðvikudagur 16. desember kl. 20:00. Sviðið, Eyravegur 1, 800 Selfoss.
