18. desember
Sambandið með jólatónleika
Hljómsveitin Sambandið með jólatónleika á Sviðinu!
Sambandið spilaði fyrir fullu húsi í Vínstofunni í Friðheimum um jólin 2025 við frábærar undirtektir og mikla ánægju gesta. Í ár verður hljómsveitin ekki aðeins á ferðinni í Biskupstungum heldur mætir hún einnig á Sviðið á Selfossi.
Þann 18. desember verða jólatónleikar Sambandsins á Sviðinu þar sem klassísk jólalög verða í bland við nýrri lög. Gamansögur, gleði og léttleiki einkennir sviðsframkomu Sambandsins og markmiðið er að gestir gangi út með bros á vör og jólaskapið í botni.
Sambandið skipa:
Daníel Aron Bjarndal Ívarsson
Magnús Skúli Kjartansson
Hákon Kári Einarsson
Ívar Dagur B. Sævarsson
Ragnar Dagur Hjaltason
Sólmundur Ingi Símonarson
Arilíus Smári Orrason
- Miðaverð
- 5.490 kr

Upplýsingar:
- Sýningartími
- 21:00
- Miðaverð
- 5.490 kr
- Húsið opnar klukkustund fyrir hvern viðburð
- Spurningar? Hafðu samband
- Skilmálar
Á Sviðinu
Föstudagur 18. desember kl. 21:00. Sviðið, Eyravegur 1, 800 Selfoss.
