Loading Events
21. nóvember

BigJoe & ISSI

ISSI og BigJoe taka yfir Miðbar!
ISSI sló í gegn með Keyra og gaf út plötuna 21 árið 2024..
BigJoe festi sig í sessi með Áhrif og plötunni Pörupiltur.
Nú sameinast þeir á sviði á Miðbar, kvöld sem enginn má missa af!
Miðsala hefst 8. október.

Miðaverð
2500 kr
21. nóvember

Upplýsingar:

Sviðstími
23:00
Miðaverð
2500 kr

Á Sviðinu

ISSI sprengdi sig inn á íslensku rappsenuna árið 2021 með smellinum Keyra og hefur síðan orðið einn af mest spennandi listamönnum landsins. Hann hefur gefið út vinsæl lög á borð við Svart Hár og slagarann Vakta svæðið með Gísla Pálma og Yung Nigo Drippin. Árið 2024 kom út fyrsta platan hans, 21, sem staðfesti að ISSI er með ferska og kraftmikla rödd í íslensku tónlistarlífi.
BigJoe kom sterkur inn á íslensku rappsenuna með laginu Áhrif og hefur síðan gefið út þrjá smelli, þar á meðal CHATTIÐ LIT með Lil Binna, og plötuna Pörupiltur. Hann var fljótur að festa sig í sessi sem einn af mest spennandi nýju röppurum landsins.


Aðgengi fyrir hjólastóla

Lyfta er við innganginn þar sem fólk með örðugleika við gang eða í hjólastól getur notað. Ef það eru einhverjar sérþarfir hjá gestum, vinsamlegast hafið samband og við reynum að koma til móts við þá.

Sviðið

  • Eyravegur 1, 800 Selfoss
  • svidid (at) svidid.is

Opnunartími

Opið á viðburðardögum. Sjáið viðburðardagatal.

Merktu með #svidid

Facebook icon
Instagram icon
© Sviðið 2025
Vefverk: Gasfabrik