Draugar fortíðar
Hlaðvarpið Draugar fortíðar sem stjórnað er af þeim Baldri Ragnarssyni og Flosa Þorgeirssyni hefur vakið mikla athygli og notið gífurlegra vinsælda. Þeir félagar taka fyrir ýmis mál úr mannkynssögunni og nálgast það úr ýmsum áttum á skemmtilegan og lifandi en umfram allt, fræðandi máta. Ekki síst hefur umræða þeirra um geðræn vandamál og andlega heilsu stuðlað að því að þeir eiga dyggan hóp hlustenda. Draugarnir munu fara víðreist um landið í janúar og heimsækja vel valda staði í öllum landshlutum.…
Á Sviðinu
Hlaðvarpið Draugar fortíðar sem stjórnað er af þeim Baldri Ragnarssyni og Flosa Þorgeirssyni hefur vakið mikla athygli og notið gífurlegra vinsælda. Þeir félagar taka fyrir ýmis mál úr mannkynssögunni og nálgast það úr ýmsum áttum á skemmtilegan og lifandi en umfram allt, fræðandi máta. Ekki síst hefur umræða þeirra um geðræn vandamál og andlega heilsu stuðlað að því að þeir eiga dyggan hóp hlustenda.
Draugarnir munu fara víðreist um landið í janúar og heimsækja vel valda staði í öllum landshlutum. Slegið verður upp einstökum Draugar fortíðar kvöldum og munu gestir verða þátttakendur í dagskránni og mögulega enda í sérstökum Draugar fortíðar þætti.
Dagskráin mun skiptast í tvo hluta. Eitt umfjöllunarefnið er flutt á öllum viðkomustöðum en hitt verður staðbundið, þ.e.a.s. umfjöllunarefnið mun snerta sögu og menningu þess staðar sem heimsóttur er. Hvert sem umfjöllunar efnið verður munu þeir Flosi og Baldur kryfja til mergjar á sinn einstaka máta.
Miðasala hefst 9. desember
Sviðið
- Eyravegur 1, 800 Selfoss
- svidid (at) svidid.is
Opnunartími
Opið á viðburðardögum. Sjáið viðburðardagatal.
Merktu með #svidid