Herbert Guðmundsson – Flakkað um ferilinn
Herbert Guðmundsson á sér feril sem er bæði litríkur og líflegur, og það er nákvæmlega það sem „Flakkað um ferilinn“ fangar. Hann hefur árum saman verið einn kraftmesti sviðsmaður landsins; fyllt sali með rödd sem nær beint í magann og persónutöfrum sem enginn annar hefur, þetta er einfaldlega innbyggt í Herbert.
Ferillinn spannar bæði stórsmelli og dýpri perlur, og á þessum tónleikum ferðast áhorfendur í gegnum áratugi af lögum sem hafa lifað með þjóðinni. Það er mikil gleði, húmor og hrá orka í öllum uppákomum hans, og þessi kvöldstund verður engin undantekning.
„Flakkað um ferilinn“ er fyrir alla sem vilja upplifa söngvara sem gefur alltaf 110% og heldur enn þá uppi stemmningu sem fáir ná að toppa. Þetta verður alvöru kvöld með Herberti, alveg í hans anda.
Frábær jólagjöf fyrir tónlistarunnendur!
Miðasala hefst 27. nóvember kl 13:00

Upplýsingar:
- Húsið opnar klukkustund fyrir hvern viðburð
- Aldurstakmark: 18 ára
- Aðgengi fyrir hjólastóla
- Spurningar? Hafðu samband
- Skilmálar
Á Sviðinu
Herbert Guðmundsson á sér feril sem er bæði litríkur og líflegur, og það er nákvæmlega það sem „Flakkað um ferilinn“ fangar. Hann hefur árum saman verið einn kraftmesti sviðsmaður landsins; fyllt sali með rödd sem nær beint í magann og persónutöfrum sem enginn annar hefur, þetta er einfaldlega innbyggt í Herbert.
Ferillinn spannar bæði stórsmelli og dýpri perlur, og á þessum tónleikum ferðast áhorfendur í gegnum áratugi af lögum sem hafa lifað með þjóðinni. Það er mikil gleði, húmor og hrá orka í öllum uppákomum hans, og þessi kvöldstund verður engin undantekning.
„Flakkað um ferilinn“ er fyrir alla sem vilja upplifa söngvara sem gefur alltaf 110% og heldur enn þá uppi stemmningu sem fáir ná að toppa.
Þetta verður alvöru kvöld með Herberti, alveg í hans anda.
Húsið opnar 20:00
18 ára aldurstakmark
Aðgengi fyrir hjólastóla
Lyfta er við innganginn þar sem fólk með örðugleika við gang eða í hjólastól getur notað. Ef það eru einhverjar sérþarfir hjá gestum, vinsamlegast hafið samband og við reynum að koma til móts við þá.
Sviðið
- Eyravegur 1, 800 Selfoss
- svidid (at) svidid.is
Opnunartími
Opið á viðburðardögum. Sjáið viðburðardagatal.
Merktu með #svidid