HJÁLMAR Á SVIÐINU
Hjálmar loksins á Sviðinu á Selfossi !
Eftir langt hlé frá tónleikahaldi stígur hljómsveitin Hjálmar á stokk og heldur tónleika á Sviðinu, Selfossi
Miðasala hefst fimmtudaginn 16. maí klukkan 12:00
Ekki láta þetta framhjá þér fara
Á Sviðinu
Hjálmar loksins á Sviðinu á Selfossi
Eftir langt hlé frá tónleikahaldi stígur hljómsveitin Hjálmar á stokk og heldur tónleika á Sviðinu, Selfossi
Hjálmar eru þekktir fyrir að vera eitt albesta tónleikaband hér á landi og það má því búast við frábærum tónleikum. Sveitina skipa þeir Guðmundur Kristinn Jónsson, Helgi Svavar Helgason, Sigurður Guðmundsson, Valdimar Kolbeinn Sigurjónsson og Þorsteinn Einarsson. Sviðið hefur verið að sækja í sig veðrið sem tónleikastaður og verða þetta fyrstu tónleikar Hjálma þar.
Um þessar mundir eru 20 ár frá því fyrsta plata Hjálma leit dagsins ljós. Hljóðlega af stað var tekin var upp í Geimsteini í Keflavík. Platan sló rækilega í gegn og skilaði sveitinni Íslensku tónlistarverðlaununum fyrir rokkplötu ársins auk nafnbótarinnar Bjartasta vonin árið 2004.
Þessum tímamótum ætlar sveitin að fagna með tónleikum á Sviðinu, Selfossi þann 7. Júní nk.
Miðasala hefst fimmtudaginn 16. maí á Tix.
Miðaverð 6.900
Sviðið
- Eyravegur 1, 800 Selfoss
- svidid (at) svidid.is
Opnunartími
Opið á viðburðardögum. Sjáið viðburðardagatal.
Merktu með #svidid