
Pálmi Gunnars
Pálmi Gunnars stígur á Svið

Upplýsingar:
- Húsið opnar klukkustund fyrir hvern viðburð
- Aðgengi fyrir hjólastóla
- Spurningar? Hafðu samband
- Skilmálar
Á Sviðinu
Laugardagskvöldið 25. febrúar ætlar Pálmi Gunnars, ásamt nokkrum af bestu hljóðfæraleikurum landsins að halda tónleika og flytja öll sín bestu lög.
Ekki þarf að fjölyrða um tónlistarferil Pálma enda fáir íslenskir tónlistarmenn sem eiga jafnlangan og og farsælan feril og hann.
Hver man ekki eftir lögum eins og Þitt fyrsta bros, Vegurinn heim og Hvers vegna varstu ekki kyrr? og allir muna eftir gleðibankanum, fyrsta framlagi Íslendinga í Eurovision, sem Pálmi flutti ásamt Helgu Möller og Eiríki Haukssyni.
Þórir Úlfars – Hljómborð
Pétur Valgarð – Gítar
Aðgengi fyrir hjólastóla
Lyfta er við innganginn þar sem fólk með örðugleika við gang eða í hjólastól getur notað. Ef það eru einhverjar sérþarfir hjá gestum, vinsamlegast hafið samband og við reynum að koma til móts við þá.
Sviðið
- Eyravegur 1, 800 Selfoss
- svidid (at) svidid.is
Opnunartími
Opið á viðburðardögum. Sjáið viðburðardagatal.
Merktu með #svidid