
RUMOURS – Til heiðurs FLEETWOOD MAC
Föstudagskvöldið 8. September

Upplýsingar:
- Húsið opnar klukkustund fyrir hvern viðburð
- Aðgengi fyrir hjólastóla
- Spurningar? Hafðu samband
- Skilmálar
Á Sviðinu
Föstudagskvöldið 8. september n.k. mun föngulegur hópur íslenskra tónlistarmanna stíga á svið á Sviðinu, Selfossi og flytja tónlist Fleetwood Mac, einnar allra vinsælustu hljómsveitar rokksögunnar.
Hljómplatan Rumours var ellefta plata Fleetwood Mac og kom út árið 1977. Hún sló sannarlega í gegn því hún sat í efsta sæti Billboard listans í Bandaríkjunum í sjö mánuði. Rumours er ein söluhæsta hljómplata allra tíma og hefur selst í meira en 40 milljónum eintaka. Platan hefur ítrekað verið valin ein af bestu plötum poppsögunnar enda inniheldur hún sígild lög eins og Don’t Stop, Dreams, Go Your Own Way, Songbird og Second Hand News.
Á tónleikunum flytur hópurinn meistaraverkið Rumours í heild sinni ásamt úrvali vinsælustu laga Fleetwood Mac. Má þar nefna Little Lies, Black Magic Woman, Hold Me, Seven Wonders, Gypsy, Big Love og Rhiannon.
Um sönginn sjá STEFANÍA SVAVARS, MAGNI OG MARGRÉT EIR.
Hljómsveitina skipa Sigfús Óttarsson (trommur), Todmobile meðlimirnir Eiður Arnarsson (bassi) og Kjartan Valdemarsson (hljómborð), Kristján Grétarsson leikur á gítar.
Miðasala er inná www.tix.is
6990kr í forsölu. 7990kr við inngang.
Aðgengi fyrir hjólastóla
Lyfta er við innganginn þar sem fólk með örðugleika við gang eða í hjólastól getur notað. Ef það eru einhverjar sérþarfir hjá gestum, vinsamlegast hafið samband og við reynum að koma til móts við þá.
Sviðið
- Eyravegur 1, 800 Selfoss
- svidid (at) svidid.is
Opnunartími
Opið á viðburðardögum. Sjáið viðburðardagatal.
Merktu með #svidid