Loading Events
16. apríl

Dávaldurinn Sailesh

Sailesh er meðal annars þekktur fyrir að geta látið fólk upplifa fullnægingu með því einu að taka í höndina á því. Sýningum hans hefur verið hampað víða um heim sem nýrri og byltingarkenndri tegund skemmtunar. Nánari upplýsingar neðar á síðunni.

Miðaverð
9900 kr
16. apríl

Upplýsingar:

Sviðstími
20:00
Miðaverð
9900 kr

Á Sviðinu

Hinn heimsfrægi Sailesh snýr aftur til Íslands með splunkunýja sýningu, byggða á góðum grunni – og enginn verður svikinn.

Sýningin verður sett upp á Akureyri, Selfossi og í Reykjavík.

Fimmtán ár eru liðin síðan Sailesh kom fyrst til landsins og sló eftirminnilega í gegn hjá þjóðinni. Sýningin er uppfull af ótrúlegum uppákomum þar sem áhorfendur verða sjálfir að stjörnum kvöldsins – fyrir framan vini og vandamenn sem gráta af hlátri við að sjá félaga sína fara á kostum á sviðinu.

Sailesh er meðal annars þekktur fyrir að geta látið fólk upplifa fullnægingu með því einu að taka í höndina á því. Sýningum hans hefur verið hampað víða um heim sem nýrri og byltingarkenndri tegund skemmtunar.

Athugið: Sýningarnar eru alls ekki fyrir börn.
Aldurstakmark er 18 ár, en 16 ára og eldri mega mæta í fylgd forráðamanns.

Um sýninguna segja fjölmiðlar:

„Fyndnasti óritskoðaði dávaldurinn á jörðinni.“

– MTV Europe„Sjúklega fyndin sýning! Ég hef ekki hlegið svona mikið í mörg ár.“

– R.R., Miami Herald„Taktu með þér vasaklút og hreinar nærbuxur. Ég lofa því að þú munt gráta af hlátri – og það eru góðar líkur á því að þú missir þvag að auki.“

– P.V., Arizona Daily Star„Ég hló eins og brjálæðingur. Fór aftur á sýninguna – og hló eins og geðsjúklingur. Drottinn minn dýri, ég hef aldrei lent í öðru eins.“

– M.R., Reno Gazette-Journal„Hvergi í heiminum færðu annan eins skammt af bröndurum á 2,5 klukkustundum. Kraftmikil og sjúklega fyndin sýning!“
– B.W., Apollo Guide

 Ekki missa af brjálaðasta grínkvöldi ársins – tryggðu þér miða áður en það verður uppselt! 


Aðgengi fyrir hjólastóla

Lyfta er við innganginn þar sem fólk með örðugleika við gang eða í hjólastól getur notað. Ef það eru einhverjar sérþarfir hjá gestum, vinsamlegast hafið samband og við reynum að koma til móts við þá.

Sviðið

  • Eyravegur 1, 800 Selfoss
  • svidid (at) svidid.is

Opnunartími

Opið á viðburðardögum. Sjáið viðburðardagatal.

Merktu með #svidid

Facebook icon
Instagram icon
© Sviðið 2026
Vefverk: Gasfabrik