
BURLESK Á SVIÐINU
Stórskemmtileg sýning fyrir lengra komna

Upplýsingar:
- Húsið opnar klukkustund fyrir hvern viðburð
- Aðgengi fyrir hjólastóla
- Spurningar? Hafðu samband
- Skilmálar
Á Sviðinu
Loksins er komið að því að burleskdrottning Íslands mæti á Sviðið með sína allra bestu kabarettvini. Fram koma: Margrét Erla Maack, Júllala, Dan the Man, Tombastic, Handy Scandies og Lil’ Miss Lixx sem er sérstakur gestur frá New York. Búið ykkur undir undrakvöld fyllt af perlum, pallíettum, sexí húsgagnasamsetningum, lekkerum dónaskap og hláturskasti. Sýningin er ekki við hæfi barna eða þeirra sem óttast undir mannslíkamans. Hermosa kynnir undratæki ástarlífsins í hléi og eftir sýningu.
VIP UPPLIFUN:
Fyrir þau sem vilja hella sér í burleskið eina kvöldstund er hægt að kaupa VIP miða.
Burlesktimi kl. 18:30-19:30 – svo það gefst tími til að borða og punta sig á milli.
Miði í tímann og á sýninguna auk freyðivínsglass í upphafi tímans er aðeins 7900. Takmarkaður fjöldi í boði.
Húsið opnar kl 20:00 fyrir almenna sýningu.
18 ára aldurstakmark.
Aðgengi fyrir hjólastóla
Lyfta er við innganginn þar sem fólk með örðugleika við gang eða í hjólastól getur notað. Ef það eru einhverjar sérþarfir hjá gestum, vinsamlegast hafið samband og við reynum að koma til móts við þá.
Sviðið
- Eyravegur 1, 800 Selfoss
- svidid (at) svidid.is
Opnunartími
Opið á viðburðardögum. Sjáið viðburðardagatal.
Merktu með #svidid