Loading Events
Uppselt!
23. febrúar

Pálmi Gunnars

Mætir aftur á Sviðið

23. febrúar

Upplýsingar

Á Sviðinu

Föstudagskvöldið 23. febrúar ætlar Pálmi Gunnars, ásamt nokkrum af bestu hljóðfæraleikurum landsins halda tónleika á Sviðinu og flytja öll sín bestu og þekktustu lög ♬
Ekki þarf að fjölyrða um tónlistarferil Pálma enda fáir íslenskir tónlistarmenn sem eiga jafnlangan og farsælan feril og hann.
Hver man ekki eftir lögum eins og Þitt fyrsta bros, Vegurinn heim og Hvers vegna varstu ekki kyrr? Og allir muna eftir Gleðibankanum, fyrsta framlagi Íslendinga í Eurovision, sem Pálmi flutti ásamt Helgu Möller og Eiríki Haukssyni 🎙
Ásamt því að starfa með Mannakornum, Brunaliðinu, Friðryk, Blúskompaníinu og Póker, svo einhverjar hljómsveitir séu nefndar, hefur Pálmi átt glæsilegan sólóferil og unnið hug og hjörtu þjóðarinnar með söngperlum sem hvert mannsbarn þekkir 🤩
👉 Pálmi gerir ekki mikið af því að koma einn fram en stígur nú á stokk og fer yfir glæsilega ferilinn sinn. Óhætt er að segja að hér sé um einstakt tækifæri til að hlýða á Pálma flytja öll sín þekktustu lög í mikilli nánd.
18 ára aldurstakmark

Sviðið

  • Eyravegur 1, 800 Selfoss
  • +354 547 0103
  • svidid (at) svidid.is

Opnunartími

Opið á viðburðardögum. Sjáið viðburðardagatal.

© Sviðið 2024
Vefverk: Gasfabrik