Loading Events
3. maí

Nashville nights

Alla leið frá Nashville Tennessee

Miðar

The numbers below include tickets for this event already in your cart. Clicking "Get Tickets" will allow you to edit any existing attendee information as well as change ticket quantities.
Nashville - almennur miði
húsið opnar kl 20:00 en tónleikar hefjast kl 21:00
5.990 kr.
66 available
3. maí

Upplýsingar

Á Sviðinu

Einstök tónlistarupplifun, þar sem fram koma 4 söngvarar og lagahöfundar frá Nashville ásamt sunnlensku söngkonunni og lagahöfundinum Önnu Hansen í svokölluðum „Writers Rounds“.

 

Nashville eða „Music city“, eins og borgin er kölluð, er einna þekktust fyrir að vera höfuðborg kántrítónlistarinnar. Meirihluti íbúanna þar eru lagahöfundar og söngvarar, sem margir hverjir semja smelli fyrir og með stórstjörnum, og semja lögin sem fara á flug um netheima og samfélagsmiðla.

 

Á hverjum degi flykkist fólk hvaðanæva að úr heiminum til Nashville til að upplifa ekta „Writers rounds“ á stöðum á borð við The Bluebird Cafe, 3rd & Lindsley, The Listening Room og The Local, og nú er röðin komin að Sviðinu á Selfossi.

 

„Writers rounds“ eru tónleikar, þar sem listamennirnir skiptast á að spila lögin sín, ásamt því að veita áhorfendum innsýn í það hvernig lögin urðu til og ferlið sem þarf til að þau nái eyrum fólks um allan heim.  Þetta er fléttað inn í frábæran flutning atvinnusöngvara og lagahöfunda í einstakri tónlistarveislu, í ekta Nashville stíl.

 

Ekki láta þennan einstaka viðburð framhjá þér fara!

 

18 ára aldurstakmark

húsið opnar kl 20:00 en tónleikar hefjast 21:00


Sviðið

  • Eyravegur 1, 800 Selfoss
  • +354 547 0103
  • svidid (at) svidid.is

Opnunartími

Opið á viðburðardögum. Sjáið viðburðardagatal.

© Sviðið 2024
Vefverk: Gasfabrik