Loading Events
4. maí

Una Torfa

Mætir á sviðið í fyrsta sinn

Miðar

The numbers below include tickets for this event already in your cart. Clicking "Get Tickets" will allow you to edit any existing attendee information as well as change ticket quantities.
Una Torfa 4.5.24
Húsið opnar klukkan 20:00 en tónleikar hefjast 21:00
6.990 kr.
96 available
4. maí

Upplýsingar

Á Sviðinu

Una Torfadóttir er 23 ára söngkona, hljóðfæraleikari, lagahöfundur og alhliða listakona sem hefur einstakt lag á að tengja saman sannleika, hverdagsleika, ást og tónlist og koma því frá sér með þeim hætti að allir sem hlusta skilja og dragast inn í heim Unu og veltast þar um hlæjandi, hlustandi og grátandi.

Una kom eins og sprenging inn í íslenskt tónlistarlíf árið 2022 þegar hún sendi frá sér fimm laga EP-plötuna Flækt og týnd og einmana.
Hver smellurinn á fætur öðrum hefur náð miklum vinsældum af stuttskífunni og hún hefur síðan gefið út lögin Fyrrverandi, Ég er stormur, Bankastræti með Elínu Hall  og Casanova með Baggalút og nú síðast lagið Skýjaborgir, vinningslag Idol þar sem Una er einn þriggja höfunda.

Allt frá 2021 þegar Una byrjaði að láta á sér kræla, hefur hvert ár verið viðburðaríkt í lífi tónlistarkonunnar sem hefur spilað um allt land á tónleikum og hátíðum. Ekki hægði hún á sér 2023 en þá rakaði hún inn hverri viðurkenningunni og verðlaunum sem hægt að var að nálgast í tónlist ásamt því að gefa út tónlist, fara í tónleikaferðalag um landið svo lítið eitt mætti nefna.

Tónleikar hefjast kl 21:00 en húsið opnar klukkustund fyrr

18 ára aldurstakmark


Sviðið

  • Eyravegur 1, 800 Selfoss
  • +354 547 0103
  • svidid (at) svidid.is

Opnunartími

Opið á viðburðardögum. Sjáið viðburðardagatal.

© Sviðið 2024
Vefverk: Gasfabrik